Við skrifuðum stefnuskrá

Því kosningar skipta máli fyrir okkur öll
— líka fatlað fólk

Kosningar til sveitarstjórna verða 16. maí 2026

Sveitarstjórnarmál fjalla um marga þætti okkar daglega lífs og eru því mikilvæg fyrir okkur öll.

Til dæmis er þjónusta við fatlað fólk á ábyrgð sveitarstjórna.

Fatlað fólk bíður í hundraðatali eftir húsnæði sem þau eiga rétt á.
Fötluð börn bíða í fleiri ár eftir greiningu.
Foreldrar og aðstandendur fatlaðs fólks þreytast á símtölum og fundum og umsóknum, bara til að fá það sem barnið á rétt á samkvæmt lögum.


Þessar kosningar skipta því miklu máli fyrir fatlað fólk.

Láttu atkvæði þitt skipta máli.

Við hvetjum alla stjórnmálaflokka að taka upp þessa stefnuskrá, kynna hana sem sína, og vinna eftir henni.

Við trúum nefnilega að réttindi fatlaðs fólks séu ekki flokkamál, heldur mannréttindamál. Og við viljum að sem flestir flokkar séu sammála.


Prófaðu líka greiningatólið okkar

Þar getur þú metið þína stefnuskrá út frá gildum Þroskahjálpar
og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

… og hafðu þetta allt í huga þegar þú mætir í kjörklefann



👨‍👩‍👧

Foreldri fatlaðs barns

Réttindi barnsins þíns, biðlistar, og það sem sveitarfélagið þarf að gera fyrir ykkur.

Sjáðu baráttumálin →
🙋

Fatlað fólk

Þín réttindi, þín rödd, og flokkarnir á þingi sem þurfa að hlusta.

Skoða stefnumálin →
🏥

Starfsfólk í þjónustu

Hvers getur þú krafist og hvað ætti kerfið að gera betur?

Skoða stefnumálin →
🗳️

Fólk í stjórnmálum og sveitarstjórn

Stefnuskráin sem þú getur tekið yfir og kynnt sem þína!

Steldu stefnuskránni →

Stefnumálin:


Hvað getur þú gert?

Stefnuskráin er tilbúin.

Þú getur tekið hana, kynnt hana, rætt hana, og sent á þá manneskju sem þú kýst í næstu kosningum.

Og hafðu þetta allt í huga þegar þú ferð inn í kjörklefann.

Scroll to Top